Aðalfundur Skíðagöngufélagsins Ullar verður haldinn í húsnæði ÍSÍ sal E, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, miðvikudaginn 3. júní 2020 kl. 20:00.
Málefni sem félagar óska eftir að tekin verði fyrir á fundinum skulu hafa borist stjórn minnst viku fyrir aðalfund á netfangið stjornullar@gmail.com
Mál sem berast eftir að sá frestur er liðinn verða ekki tekin fyrir nema 2/3 fundarmanna samþykki það. Rétt til fundarsetu með öllum réttindum hafa skuldlausir félagar.
Dagsskrá aðalfundar:
1. Fundarsetning
2. Kosnir fundarstjóri og fundarritari
3. Lögð fram ársskýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og umræða um hana
4. Skýrslur nefnda
5. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar, umræða og atkvæðagreiðsla
6. Fjárhagsáætlun næsta starfsárs
7. Lagabreytingar ef fyrir liggja
8. Stjórnarkjör:
a) kosinn formaður
b) kosnir fjórir aðalstjórnarmenn
c) kosnir tveir varamenn í stjórn
d) kosinn skoðunarmaður og annar til vara
9. Aðrar tillögur sem borist hafa til stjórnar
10. Önnur mál
11. Fundarslit
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í að móta starf félagsins, því þetta er ykkar félag.
Stjórnin