Skíðalandsmót Íslands í skíðagöngu fór fram á Ólafsfirði dagana 28.–30. mars. Keppendur Skíðagöngufélagsins Ullar tóku þar þátt og skiluðu félaginu eftirtektarverðum árangri. Á síðasta keppnisdegi voru jafnframt bikarmeistarar SKÍ fyrir tímabilið 2025–2026 krýndir.
Kristrún Guðnadóttir átti mjög gott mót og vann allar einstaklingsgreinar, auk þess sem hún og María Kristín Ólafsdóttir unnu liðasprett kvenna. María Kristín varð í 2. sæti í öllum einstaklingsgreinum og Vala Kristín Georgsdóttir náði 3. sæti í sprettgöngu og 15 km hefðbundinni göngu. Með þessum úrslitum skipuðu keppendur Ulla þrjú efstu sætin í bæði sprettgöngu og hefðbundinni göngu í kvennaflokki.
Hjalti Böðvarsson varð í 2. sæti í 10 km göngu með frjálsri aðferð í flokki 19–20 ára karla. Hann hafnaði í 8. sæti í sprettgöngu 17 ára og eldri og Stefán Ragnarsson í 10. sæti. Stefán varð einnig í 10. sæti í 15 km hefðbundinni göngu og 9. sæti í 10 km göngu með frjálsri aðferð.
Í flokki stúlkna 15–16 ára varð Áslaug Yngvadóttir í 3. sæti í 5 km hefðbundinni göngu og í 6. sæti í bæði frjálsri aðferð og sprettgöngu.
Margrét Sólveig Hinriksdóttir keppti í flokki 13–14 ára stúlkna og náði fínum árangri. Hún varð í 14. sæti í sprettgöngu, 15. sæti í 3,5km göngu með hefðbundinni aðferð og 15. sæti í 3,5km göngu með frjálsri aðferð. Í sama aldursflokki hjá drengjum varð Ólafur Sveinn Böðvarsson í 2. sæti í öllum sínum greinum: spretti, hefðbundinni og frjálsri aðferð.
Í flokki 15–16 ára drengja náðu Daði Pétur Wendel og Matthías Karl Ólafsson góðum úrslitum.
- Daði Pétur: 2. sæti í spretti og 5 km hefðbundinni, 3. sæti í 5 km frjálsri.
- Matthías Karl: 2. sæti í 5 km frjálsri, 3. sæti í spretti og 5 km hefðbundinni.
- Saman urðu þeir í 2. sæti í liðaspretti 13–16 ára.
Bikarmeistaratitlar í mótaröð vetrarins
Ullur varð bikarmeistari liða í flokki 17 ára og eldri með 2.397 stigum. Félagið endaði í 3. sæti í liðakeppni 13–16 ára.
Í einstaklingskeppni mótaraðarinnar varð María Kristín Ólafsdóttir bikarmeistari í flokki 17 ára og eldri og Vala Kristín Georgsdóttir í 3. sæti. Þá varð Matthías Karl annar í flokki 15-16 ára og Daði Pétur í 3. sæti.
Sannarlega frábær árangur hjá öllum og félagið stolt af sínum félögum á Skíðamóti Íslands.
Hlynur Kristinsson tók fjölda mynda á mótinu sem finna má hér og hér. Umfjöllun RÚV um mótið má sjá hér og hér.
Að lokum þakkar Skíðagöngufélagið Ullur Skíðafélagi Ólafsfjarðar fyrir frábært mót sem haldið var við erfiðar aðstæður suma daga en frábærar aðstæður aðra daga!