Æfingar fyrir börn og unglinga 2026-2027
Markmið okkar er að koma sem flestum börnum og unglingum á gönguskíði og styðja þau í að ná markmiðum sínum.
Skráning í Abler.
Þjálfarar:
Kristrún Guðnadóttir – yfirþjálfari
Þuríður Yngvadóttir þjálfari 6-11 ára
Katrín Ósk Einarsdóttir þjálfari 6-11 ára
Róbert Bragi Kárason þjálfari
Æfingar:
12+ mánudag (inniæfing), þriðjudag, fimmtudag og laugardag
9-11 ára fimmtudag og laugardag (september – apríl)
6-8 ára laugardag (september – apríl). Fimmtudag fyrir þá sem vilja.
Staðsetning á æfingum fer eftir aðstæðum og tegund æfingar en að vetri til eru æfingarnar í Bláfjöllum eða annars staðar þar sem snjórinn er, t.d. Heiðmörk. Þegar ekki er snjór eru
æfingar oftast við Árbæjarsafnið, Dalskóla eða Heiðmörk.
Það er alltaf velkomið að koma og prófa, endilega hafið samband við okkur ef þið hafið áhuga á því svo við getum tekið vel á móti ykkar barni. Við getum lánað þeim sem vilja prófa búnað til þess, en þá þarf að skipuleggja það með smá fyrirvara. Best er að senda tölvupóst á krakkaullur@gmail.com
Útfærsla:
Skíðagönguskólinn er fyrir krakka sem eru fædd 2018-2020. Þar eru
æfingar tvisvar í viku, en einnig er í boði að mæta bara einu sinni í viku en helgaræfingar verða miðaðar að því að koma til móts við byrjendur. Staðsetning æfinga fer eftir aðstæðum. Æfingar eru ýmist í Bláfjöllum eða öðrum svæðum á eða í námunda við höfuðborgarsvæðið þegar aðstæður eru til. T.d. Hólmsheiði, Heiðmörk, Elliðaárdal, Víðistaðatúni eða Blikastöðum. Allar æfingar eru utandyra og má því búast við að einhverjum æfingum verði aflýst eða færðar yfir á aðra daga ef veður er mjög slæmt. Æfingar eru að langmestu leyti leikir á skíðunum.
9-11 ára
er fyrir krakka fædda 2015-2017. Æfingar eru tvisvar í viku. Æfingar eru mikið byggðar upp á leikjum þar sem farið er í grunn, leiki og jafnvægi. Æfingar eru ýmist í Bláfjöllum eða öðrum svæðum á eða í námunda við höfuðborgarsvæðið þegar aðstæður eru til. T.d. Hólmsheiði, Heiðmörk, Elliðaárdal, Víðistaðatúni eða Blikastöðum. Allar æfingar eru utandyra og má því búast við að einhverjum
æfingum verði aflýst eða færðar yfir á aðra daga ef veður er mjög slæmt.
Hægt er að skrá sig heilan vetur eða einungis vorönn, og velja að vera á einni eða tveimur æfingum á viku.
Þriðjudagar: 18-19.
12 ára og eldri
er fyrir unglinga fædda 2014 og fyrr. Æfingar eru fjórum sinnum í viku. Mánudagsæfingar eru inniæfingar í Ártúnsskóla en hina dagana eru útiæfingar. Einnig er hægt að vera 2 æfingar á viku.
Á haustin eru hjólaskíðaæfingar eða hlaupaæfingar en þegar snjórinn kemur er yfirleitt farið í Bláfjöll ef það er opið þar, annars er farið þangað sem hægt er að skíða (Heiðmörk, Hólmsheiði).
Athugið að ef barn vill fylgja hóp sem er kominn lengra þá er það besta mál svo
framarlega sem foreldri fylgi barninu þannig að ekki sé hætta á það verði eitt
viðskila við hópinn.
Við spurningar og annað er hægt að senda tölvupóst á:
Skráning er í gegnum Sportabler: https://www.abler.io/shop/ullur/
Nokkrir punktar varðandi æfingar:
- Mæta þarf tímanlega á æfingar, æfingin byrjar á settum tíma.
- Mæta með vatnsbrúsa í belti á æfinguna.
- Börnin þurfa að vera klædd eftir veðri:
- Góð innanundirföt, skíðabuxur eða utanyfirbuxur og jakki sem heftir ekki hreyfingar. Buff fyrir háls og andlit, góðir vettlingar og húfa. Hafið samt í huga að manni hitnar fljótt við skíðagöngu þannig að gott er að klæða sig samt ekki of mikið. Athugið samt að oft er töluvert kaldara uppi í Bláfjöllum en í bænum þannig að takið mið af veðrinu uppi í Bláfjöllum.
- Vera með úlpu eða önnur aukaföt til að fara í þegar æfingin er búin.
- Vera með eitthvað smá nesti til að borða eftir æfingu
Barnastarfið eins og annað starf í Ulli er borið uppi af sjálfboðaliðastarfi. Fyrir utan þjálfara sem sjá um þjálfun á æfingum þá sjá foreldrar um allt barnastarfið og er því mikilvægt að allir taki þátt svo hægt sé að skipta með okkur verkum. Þegar farið er í keppnisferðir sjá foreldrar um að allt sem við kemur sínu barni. Að komast á staðinn, gistingu og að undirbúa skíðin. Það er um að gera fyrir foreldra sem eru nýir í skíðagöngu að leita til reyndari aðila í hópnum til að fá kennslu og ráð í umhirðu skíðanna og öðru.
Æfingagjöld fyrir árið eru:
- 6-8 ára: 35.000 Allt árið. Ein æfinga á viku: 25.000. (Vetur 30.000, ein æfing á viku: )
- 9-11 ára: 50.000 Allt árið. Tvær æfingar á viku: 35.000 (Vetur: 35.000 fullt starf, ein æfinga á viku: 20.000)
- 12 ára og eldri: 4 æfingar á viku: 95.000. Tvær æfingar á viku: 65.000. (Vetur: 65.000 fullt starf, 50.000 2 æfingar á viku)