Heiðmörk með sínu skjólgóða og fagra umhverfi hefur um árabil notið mikilla vinsælda meðal skíðagöngufólks. Ný skíðagöngubraut hefur verið lögð sem auðveldar aðgengi að svæðinu. Þá hefur nýr búnaður verið tekinn í notkun til að bæta þjónustuna.
Nýja skíðagöngubrautin liggur frá Elliðavatnsbænum, framhjá Myllulækjartjörn og að skíðagöngubrautum við Hjallabraut. Nú er því hægt að leggja bílum á bílastæðinu við Elliðavatnsbæinn og halda af stað þaðan á gönguskíðum.
Þar til nú hefur skíðagöngufólk jafnan ekið að Hjallabraut og lagt þar. Vetrarfærð um Heiðmörk getur verið misgóð. Stundum þarf að loka fyrir bílaumferð um stóran hluta Heiðmerkur vegna þess að mikill snjór þjappast í svell og erfiða akstursskilyrði. Vegna þessara aðstæðna, óskuðu Veitur eftir því að lokað yrði fyrir bílaumferð um Heiðmerkurveg nærri vatnsverndarsvæðum. Þetta var talið nauðsynlegt til að tryggja mætti öryggi vatnsverndarsvæðanna enda gæti olíuleki vegna bílslyss valdið miklu tjóni. Nýja skíðagöngubrautin er samstarfsverkefni Skógræktarfélags Reykjavíkur og Orkuveitu Reykjavíkur og unnin í samstarfi við Ull. Með henni verður hægt að halda á gönguskíði án þess að aka framhjá vatnsverndarsvæðunum auk þess sem aðgengi að bílastæðum batnar. Skíðagöngufélagið Ullur hefur átt frumkvæði að uppbyggingu skíðagöngubrauta síðustu ár með sjálfboðaliðastarfi.
Nýja skíðagöngubrautin er um 2,4 kílómetra löng. Hún var lögð í sumar og haust. Ryðja þurfti braut í gegnum skóginn, slétta undirlag á köflum og bera í efni á stöku stað. Stefnt er að því að halda áfram með þessa vinnu þannig að hjólreiðafólk eigi auðveldara með að nota brautina yfir sumarmánuðina.
Hægt að fylgjast með sporlagningu í rauntíma
Nýr staðsetningarbúnaður sem Ullur hefur fest kaup á, mun í gera fólki kleift að fylgjast með því í rauntíma þegar verið er að troða brautir. Skíðagöngubrautir í Heiðmörk hafa verið merktar og eru nú hægt að sjá þær á Skisporet annað hvort á vefnum eða í appi. Framvegis verður hægt að fylgjast sporlagningu í rauntíma og sjá hve langt er liðið frá því að skíðagöngubrautin var troðin. Sami búnaður er nú í notkun í Bláfjöllum, á skíðasvæði Ísfirðinga, í Hlíðarfjalli og Kjarnaskógi í Eyjafirði.
Um félagið
Staðan í dag, föstudag 13. mars, í Heiðmörk er sú að til staðar er ótroðið spor. Búið er að loka fyrir umferð en skíðafólk er velkomið á svæðið. Hægt er að leggja bílunum við Elliðavatn/Helluvatn.