Aðalfundur og lokahóf 2024

Aðalfundur skíðagöngufélagsins Ullar verður haldinn í húsnæði Veðurstofu Íslands, Bústaðavegi 7, fimmtudaginn 16. maí 2024 kl. 18:30.  

Málefni sem félagar óska eftir að borin verði upp á fundinum þurfa að berast til stjórnar viku áður en fundur hefst, það er eigi síðar en fimmtudaginn 9. maí á netfangið stjornullar@gmail.com   Málefni sem berast eftir 9. maí verða ekki borin upp nema 2/3 hluti fundarmanna samþykki það.

Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar í Ulli.  Félagar eru hvattir til að mæta og taka þannig virkan þátt í mótun starfseminnar.

Lokahóf Ullar hefst að loknum aðalfundi kl. 20:00 á sama stað.  Í boði verður snarl og léttar veitingar.  Allir félagar eru hvattir til að mæta og gleðjast yfir góðum árangri Ullunga á liðinni skíðavertíð. Vinsamlegast skráið ykkur á lokahófið hér til að áætla veitingar.

Dagskrá aðalfundar:

1. Fundarsetning
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Ársskýrsla stjórnar lögð fram til umræðu
4. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram til umræðu og samþykktar
5. Lagabreytingar ef fyrir liggja
6. Kosning til stjórnar Ulls:
    a. Formaður
    b. Fjórir aðalstjórnarmenn
    c. Tveir varastjórnarmenn
    d. Skoðunarmaður reikninga
    e. Skoðunarmaður reikninga til vara
7. Önnur málefni/tillögur sem borist hafa
8. Önnur mál
9. Fundarslit

Með félagskveðju,
Stjórn Ullar, 2023-2024

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur