Aðalfundur Skíðagöngufélagsins Ullar verður haldinn fimmtudaginn 7. maí 2026 kl. 18:00. Staðsetning: Salur Veðurstofu Íslands, Bústaðavegur 9. (Minna hús til hægri áður en komið er að aðalbyggingu)
Málefni sem félagar óska eftir að borin verði upp á fundinum þurfa að berast til stjórnar viku áður en fundur hefst, það er eigi síðar en fimmtudaginn 30. apríl, á netfangið stjornullar@gmail.com Málefni sem berast eftir 30. apríl, verða ekki borin upp nema 2/3 hluti fundarmanna samþykki það.
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar í Ulli. Félagar eru hvattir til að mæta og taka þannig virkan þátt í mótun starfseminnar.
Léttar veitingar í boði að loknum fundi.
Við erum alltaf að leita að fólki í stjórn og nefndir og hvetjum nýja og eldri félaga til að mæta, ræða veturinn og hugmyndir fyrir næsta vetur.
Dagskrá aðalfundar:
- Fundarsetning
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Ársskýrsla stjórnar lögð fram til umræðu
- Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram til umræðu og samþykktar
- Lagabreytingar ef fyrir liggja
- Kosning til stjórnar Ulls: a. Formaður b. Fjórir aðalstjórnarmenn c. Tveir varastjórnarmenn d. Skoðunarmaður reikninga e. Skoðunarmaður reikninga til vara
- Önnur málefni/tillögur sem borist hafa
- Önnur mál
- Fundarslit
Með félagskveðju, Stjórn Skíðagöngufélagsins Ullar